
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Brotið var á réttindum skurðlæknis þegar honum var veitt áminning í starfi á Landspítala og vinnuframlag hans afþakkað. Þetta er niðurstaða umboðsmanns Alþingis.
Tölvuárásir á vefhýsingarfyrirtækið 1984 eru utanríkisráðherra mikið áhyggjuefni en slíkar árásir hafi þó ekki áhrif á hvernig íslensk stjórnvöld beiti sér á alþjóðavettvangi.
Konur og stúlkur eru í mestri hættu inni á heimilinu. Í nýrri skýrslu UN Women kemur fram að fimm konur eru drepnar af einhverjum sér nákomnum á hverri klukkustund.
Lögreglumenn eru reiðir og ósáttir við hvernig héraðssaksóknaraembættið sinnir rannsóknum á alvarlegum ofbeldis- og hótanabrotum gegn þeim.
Aðhald verður aukið lítillega til að tryggja hallalaus fjárlög, segir fjármálaráðherra. Skattar verða ekki hækkaðir.
Fjögur börn eru meðal þeirra sem Rússlandsher særði í loftárásum á borgina Zaporizhzhia í Úkraínu í morgun.
Rekstur skíðasvæðisins í Tindastóli hefur verið tryggður í vetur með hækkun á framlagi sveitarfélagsins um rúm 20%. Sveitarstjóri telur reksturinn ekki eiga heima hjá sveitarfélaginu.
Forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands kveðst telja sameiningu við Náttúrufræðistofnun efla báðar stofnanir og tryggja að unnt verði að opna nýja grunnsýningu á næsta ári.

Útvarpsfréttir.