Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 23. nóvember 2026

Samkeppniseftirlitið hyggst kanna hvort íslenskir neytendur hafa notið góðs af lækkandi heimsmarkaðsverði á eldsneyti. Það geti verið erfitt að átta sig á hvort verðið er sanngjarnt í ljósi tíðra breytinga.

Ríkið ætti að styðja nethýsingarfyrirtæki sem verða fyrir árásum í stað þess að sekta þau fyrir öryggisgalla segir framkvæmdastjóri nethýsingarfyrirtækis sem ráðist var á fyrir helgi.

Rússar eru sagðir ætla að koma kjarnorkusprengju á sporbraut um jörðu fyrir árslok. Þriðjungur fjarskipta- og staðsetningarhnatta á lágri sporbraut um jörðu gæti dottið út við sprengingu.

Þingmaður Flokks fólksins neitar því að ekki hafi verið greitt fyrir hlut hans í strandveiðiútgerðinni Sleppu, eins og Morgunblaðið heldur fram. Kaupunum hafi verið rift því útgerðin gekk illa.

Björgunarmenn sigu niður í Hamarsá með kajak , til að bjarga eftirlegukind sem var þar í sjálfheldu með tvö lömb.

Kokkalandsliðið er skrefi nær verðlaunapall á heimsmeistaramóti í Lúxemborg – það fékk gullverðlaun í heita eldhúsinu um helgina.

HM kvenna í fótbolta 2031 verður í Bandaríkjunum, Mexíkó, á Djamaíka og Kosta Ríka. Það verður í fyrsta skipti sem svo stórt fótboltamót er haldið í þeim síðastnefndu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,