
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Björgunarsveitir á suðvesturhorni landsins voru kallaðar út í morgun og í nótt vegna hvassviðris og foktjóns. Töluverðar tafir eru á flugi, bæði millilanda- og innanlandsflugi.
Samningaviðræður á COP31, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, eru komnar í öngstræti og ráðstefnan orðin sú lengsta í sögunni. Aðildarríki koma sér ekki saman um hvað skuli gera við jarðefnaeldsneyti og olíuríki eru sögð hafa hertekið samningaviðræðurnar.
Sérstaklega var ráðist á vefsíður sem styðja málstað Palestínumanna í netárásinni á vefhýsingarfyrirtækið 1984. Formaður Félagsins Ísland-Palestína segir að vefsíða félagsins sé mögulega ónýt.
Samskiptaforritið Signal ætlar að taka fyrir að notendur geti tekið skjáskot af spjalli af ótta við að önnur forrit innan símans geti komist yfir skjáskotin með aðstoð gervigreindar.
Og Ný altarisklæði sem eru endurgerð á upphaflegum klæðunum verða vígð í Borgarneskirkju í dag.

Útvarpsfréttir.