Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. nóvember 2026

Tilraunir rússa til að fá danska menn til að ráða úkraínskan rappara af dögum endurspegla alvarlegt og versnandi öryggisástand, að mati utanríkisráðherra. Hún segir Íslendinga verða að vera vakandi fyrir mögulegum aðgerðum Rússa hér á landi.

Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum lækkuðu verulega í gær og margir greinendur skella skuldinni á gervigreindarfyrirtæki. Fjárfestar séu orðnir efins um að þessi fyrirtæki séu jafnverðmæt og hlutabréfaverð þeirra gefur til kynna.

Sérfræðingur við lagadeild HR hvetur fólk til að hugsa sig um áður en það dreifir kynferðislegu myndefni af öðrum. Það geti varðað hegningarlög.

Siglfirðingar kalla eftir nákvæmari veðurspám eftir óveðrið í október sem olli miklu tjóni í bænum. Veðurstofan hefur rætt mögulegar úrbætur við heimamenn en óvíst er hvort þær skili betri spám og hver eigi að greiða fyrir þær.

Nýliðar Sindra unnu í gær sinn fyrsta sigur í efstu deild karla körfubolta þegar liðið lagði Njarðvík með 107 stigum gegn 101.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,