
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Demókratar unnu stórsigur í kosningunum í Bandaríkjunum í gær og náðu meirihluta í báðum þingdeildum. Donald Trump forseti segist vel geta unnið með Demókrötum síðustu tvö ár sín í embætti.
Fjöldi ferðamanna átti bókaða gistingu á Radisson Red hótelinu við Skúlagötu í Reykjavík þar sem framkvæmdir hafa verið stöðvaðar. Fyrirtæki í ferðaþjónustu vinna að því að koma þeim fyrir á öðrum hótelum.
Sjávarútvegurinn dró verulega úr fjárfestingu í fyrra þrátt fyrir að tekjur hefðu hækkað milli ára. Arðgreiðslur voru þær lægstu í minnst fimm ár: tæpir sautján milljarðar.
Fjarskiptastofa vill að símafyrirtækin loki á þrjú til fjögur þúsund síma sem ekki geta hringt í Neyðarlínuna. Forstjóri stofnunarinnar segir ólíðandi að fólk geti ekki hringt í neyðarnúmerið 112.
Héraðsdómi Reykjaness þykir ekki sannað að Georgios Ntentes hafi ráðið félaga sínum bana heima hjá honum á Kársnesi í fyrra. Hann var sýknaður af ákærunni í morgun.
Borgarfulltrúi Vinstrisins segir yfirsýn skorta í nýrri fjárhagsáætlun meirihlutans í Reykjavík. Óvissa og óreiða sé fram undan í rekstri borgarinnar.
Ísland tekur á móti Úkraínu í fyrsta leik undankeppni Evrópumóts karla í handbolta 2028. Uppselt er á leikinn sem verður í Laugardalshöll í kvöld.

Útvarpsfréttir.