
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Erlendir ráðamenn hafa spurt Utanríkisráðherra út í ummæli fyrrverandi forseta sem hafi ýtt undir skýringar og sjónarmið Rússa eftir innrás þeirra í Úkraínu.
Útlit er fyrir æsispennandi slag um yfirráð í öldungadeild Bandaríkjaþings, kosið er vestra í dag.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir fjármálaráðherra þurfa að svara betur fyrir aðdraganda afsagnar forstjóra Landsvirkjunar. Ljóst sé að ráðherra hafi ekki sagt satt um fyrir málið í þingsal.
Nýjum almannavarnabæklingi ætlað að fræða en ekki hræða segir dómsmálaráðherra. Hann er varfærnislegri í orðalagi en á öðrum Norðurlöndum.
Rússlandsher særði tugi manna í árás á heilbrigðisstofnun í Úkraínu í nótt. Stefnt er að viðræðum milli ríkjanna í Abú Dabí í næstu viku.
Að minnsta kosti tveir kælar í íslenskum fyrirtækjum urðu fyrir netárás í gær. Árásin olli ekki tjóni hér en sambærilegar árásir í Evrópu urðu til þess að henda þurfi ógrynni af mat.
Borgin ætlar að hagræða með því að selja eignir, huga að einkaupum og veikindum starfsmanna. Meirihlutinn boðar viðsnúning á fjárhag borgarinnar strax á næsta ári.
Fyrsti leikur Íslands í undankeppni EM 2028 í handbolta er á morgun. Gísli Þorgeir Kristjánsson segir mikilvægt að nýta komandi leiki í undirbúning fyrir stórmót.

Útvarpsfréttir.