
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Maður á fertugsaldri sem er í einangrun vegna gruns um manndráp í Breiðholti um helgina sætti fjárkúgun þess sem lést. Faðir mannsins sætir einnig gæsluvarðhaldi.
Aðalmeðferð vegna fjársvika sem beindust gegn Landsbankanum hófst fyrir héraðsdómi í dag. Sjötíu og einn er ákærður.
Rúður voru brotnar í tæplega þrjátíu bílum á Seltjarnarnesi í nótt. Lögregla óskar eftir myndefni úr öryggismyndavélum.
Demókratar eru taldir hafa forskot á Repúblikana í nær öllum þeim sjö ríkjum sem talin eru ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings, Kosið er á morgun.
Fjölskyldan sem á Fjarðarkaup ætlar að selja dótturfélagi Dranga verslunina. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Aðalmeðferð hófst í dag í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti gegn fjórum mönnum og fjölskyldum þeirra. Hún neitar sök og segist sjálf hafa orðið fyrir áreiti.
Fiskikör eru gjarnan tekin í óleyfi. Síldarvinnslan í Neskaupstað endurheimti kör fyrir eina og hálfa milljón, eftir leitarleiðangur um suðvesturhornið. Körin finnast hjá fiskvinnslum og bændum.
Brýn þörf er á uppbyggingu æfingarsvæða Brunamálaskólans fyrir slökkvilið hérlendis. Slökkviiðsmenn geta hvergi æft sig í öllum þeim verkefnum sem þeir þurfa að fást við og faglegar kröfur hafa aukist.
Breskur ævintýramaður er við það að ljúka tæplega 30 ára göngu þvert yfir heiminn.

Útvarpsfréttir.