
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Maður var stunginn til bana í Breiðholti í nótt og annar er alvarlega sár á spítala. Þrír eru í haldi lögreglu.
Fangageymslur eru annars yfirfullar eftir nóttina. Hrekkjavakan var í gær og aðstoðaryfirlögregluþjónn segir erilinn því ekki koma á óvart.
Tillaga ríkissáttasemjara að lausn í deilu kennara, ríkis og sveitarfélaga fólst í því að endurskoðunarpunktur samninganna var færður og er nú í mars.
Óeirðaseggir brutust inn í verslanir í Frankfurt í gærkvöld og það kom til átaka í fleiri þýskum borgum þar sem skipulögð mótmæli fóru fram. Hundruð þúsunda komu einnig saman til mótmæla í Frakklandi, þriðju helgina í röð.
Búlgarar velja í dag á milli tveggja frambjóðenda með gjörólíka sýn á tengsl landsins við Rússland í síðari umferð forsetakosninga.
Húnavallaleið, sem myndi stytta hringveginn um 14 kílómetra, er ekki í nýju aðalskipulagi Húnabyggðar. Sveitarstjóri viðurkennir að það gæti torveldað framkvæmdir við veginn í framtíðinni.
Þótt skemmtun í kringum hrekkjavöku hafi stóraukist síðustu ár þá hefur hrekkjavaka ekki gert út af við öskudag, segir þjóðfræðingur. Íslendingar séu spenntir fyrir nýjungum en þyki líka vænt um hefðir.
Karlalið Hauka vann stórsigur á KA í toppslag úrvalsdeildar karla í handbolta í gærkvöldi. Haukar eru með fullt hús stiga í deildinni eftir níu leiki og eru fjórum stigum á undan Val þegar deildin fer í frí vegna landsleikja.

Útvarpsfréttir.