Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 30. október 2026

Yfir hundrað stöðugildi voru lögð niður hjá hinu opinbera í vikunni. Fjármálaráðherra segir uppsagnir áhyggjuefni - þó að þær komi ekki á óvart.

Óvenjumargir árekstrar urðu á skömmum tíma í mikilli hálku í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins í dag.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hættur að mæta í eigin persónu á kosningafundi Repúblikanaflokksins

Frá hádegi er hægt að láta bólusetja sig gegn innflúensu í apótekum - þannig á að létta á heilsugæslum.

Efla þarf fræðslu um ME-sjúkdóminn, samkvæmt nýrri skýrslu landlæknis. Formaður ME-félagsins segir beinlínis skaðlegt þegar sjúkdómurinn sé ranglega meðhöndlaður.

Áhrif vindorkuvers á Melrakkasléttu á umhverfi og samfélag eru kynnt á íbúafundi á Raufarhöfn í hádeginu.

Breski leikarinn Patrick Stewart lést í gær. Hann hóf ferilinn með túlkun á persónum Williams Shakespeare og varð ein stærsta stjarna samtímans.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,