
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Zelenský segir Úkraínumenn reiðubúna að hætta árásum á olíuinnviði í Rússlandi um leið og Rússar hætti árásum á orkuinnviði Úkraínu. Trump gagnrýndi árásir Úkraínu í gær og sagði landið þurfa nýjan forseta.
Bandalag undir stjórn Sádí-Arabíu heitir afdráttarlausum aðgerðum gegn Hútum eftir mannskæða árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær. Hútar vara Sádi-Araba við því að nota flugvelli landsins.
Lögregla segir faraldur skemmdarverka í gangi í Reykjavík. Hakakross var rispaður á bíl í Vesturbænum í vikunni.
Fjórir fórust þegar fellibylur gekk á land í suðausturhluta Bandaríkjanna um helgina. Annar enn öflugri fellibylur nálgast Mexíkó.
Fólk í ferðaþjónustu og sveitarstjórnum á Suðurlandi er heilt yfir ósátt með hugmyndir um komugjöld á ferðamenn sem heimsækja Gullna hringinn, segir framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi.
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur tekið í notkun bráðagöngudeild lyflækninga. Opna á sambærilega deild fyrir skurðlækningar á næstu misserum.
Og fólki gefst kostur á að kynna sér tæki og tól til landbúnaðar í Laugardalshöll í dag. Við kíkjum á Landbúnaðarsýninguna í fréttatímanum.

Útvarpsfréttir.