Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Framhald af síðasta þætti. Hér segir frá því þegar móðir Svetlönu er fallin frá og Stalín á að annast uppeldi Svetlönu og bróður hennar en kemur því æ meira yfir á sístækkandi hersveit starfsfólks og leyniþjónustumanna. Og ódámurinn Lavrentí Bería birtist á sjónarsviðinu.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.