Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Jón Steingrímsson var sonur Steingríms Matthíassonar sem margoft hefur komið við sögu í Frjálsum höndum. Hann reyndist ekki vera síður skemmtilegur minningahöfundur en faðir hans þegar hann gaf út bókin Kolakláfar og kafbátar þar sem hann segir frá sjómennskuferli sínum. Í þessum þætti er lesið úr bók hans.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.