16:05
Síðdegisútvarpið
Innlend greiðslumiðlun,Hera í Ástralíu og sveitastjóri Mýradalshrepps um öryggi íbúa
Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Andri Freyr Viðarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Vopnahlé á Gaza er líklegra en nokkru sinni fyrr, að sögn stjórnvalda í Katar. Viðræður hafa staðið í Doha, höfuðborg Katar, í morgun og meiri bjartsýni er ríkjandi en oft áður. Og hingað kom Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fréttamaður en hún hefur fylgst með þessu máli.

HM í handbolta hefst í dag en fyrsta viðureignin fer fram núna klukkan 17 þegar Frakkar og Katarar takast á og verður leikurinn sýndur í beinni á RÚV. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafrétamaður kemur til okkar á eftir

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir áríðandi að innlendri greiðslumiðlun verði komið upp á Íslandi og að í raun sé það þjóðaröryggismál. Við ræddum þetta við Breka.

Í nýrri grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag rekur Einar Freyr Elínarson sveitastjóri Mýrdalsshrepps áhyggjur sínar varðandi það að hvorki hafi gengið að byggja upp heil­brigðisþjón­ustu né lög­gæslu á Suður­landi og mikið skort­ir á að fjár­fest sé í sam­göngu­innviðum. Einar hefur áður tjáð sig um þessi mál og stutt er síðan rafmagn fór af á svæðinu og langur tími leið þar til varafl tók við sem ógnaði öryggi íbúa á svæðinu. Við heyrðum í Einari í þættinum.

Hera Björk mun koma fram á 13 tónleikum í Ástralíu núna í janúar og febrúar. Hún lagði af stað í þessa miklu reisu og er stödd í Frankfurt þar sem hún millilenti áður en hún heldur lengra og við heyrðum í henni og spurðum hana útí þetta mikla ævintýri sem framundan er.

Það er fátt sem minnir okkur á vorið þessa dagana en Garðyrkjufélagið ætlar að gera allt sitt til að breyta þeim þankagangi því í kvöld ætla þau að láta okkur dreyma um vorið og fara yfir hvað við getum gert skemmtilegt á árinu. Guðríður Helgadóttir eða Gurrý í garðinum var á línunni hjá okkur og sagði okkur frá því hvernig við trekkjum okkur í gang í huganum og hugsum um garðyrkjustörfin.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,