Rokkland
Gasolin + Kevin Cole og íslensk tónlist og útvarp
Í Rokklandi vikunnar tökum við upp þráðinn þaðan sem frá var horfið fyrir viku með Bandaríska útvarpsmanninum Kevin Cole frá KEXP sem hefur komið reglulega til Íslands undanfarin 20 ár til þess að kynna sér íslenska tónlist og taka upp íslenskar hljómsveitir og listamenn.
Við ræðum um hvað einkennir íslenskt tónlistarlíf, hvað er öðruvísu á Íslandi en í Bandaríkjunum t.d. Við tölum um músíkútvarp, Músíktilraunir, tónlistarskólana á Íslandi, mugison, Of Monsters and Men, Jóhann Jóhannsson, Lúpínu, Eydís Evensen, Sigur Rós og Utangarðsmenn svo eitthvað sé nefnt.
En í fyrri hluta þáttarins er það plata sem kom út í gær í Danmörku með tónlist hljómsveitarinnar Gasolin sem Kim Larsen var söngvari í frá 1969-1978. Þar koma við sögu Helgi Hrafn Jónsson, Andrea Gylfadóttir, Mugison og Bubbi Morthens.
Þórhallur Jónsson (Thorhallur Jonsson) hjá CRUNCHY FROG útgáfunni í Kaupmannahöfn sem gefur plötuna út og Bubbi verða á línunni.
Hér er lagalisti þáttarins:
Gasolin! / Langebro
DAD / Hey Lilli lilli
Gasolin! / Laphophora Williams II
Gasolin! / Fra Dag to dag
Bubbi / Smukke unge mennesker
Bubbi – Mugison – Andrea Gylfa – Helgi Hrafn / Langabrú
Gus Gus / Over
Utangarðsmenn / Fuglin er floginn
Mammút / Salt
Roxy music / Virginia plain
Mugison / Murr murr
Caroline Rose / Valerie
Lúpína / Alein
Jóhann Jóhansson / A song for Europa
The Ramones / Rock´n roll radio
Eydís Evensen og GDRN / Midnigh moon
Laufey / Like the movies
Amor Vincit Omnia / Ber
Sigur Rós / Gong
OMAM / Little talks