Stebbi Jak - Líttu í kringum þig
Stebbi Jak mætir til Danna í Plötu vikunnar með breiðskífuna Líttu í kringum þig. Í þættinum fara þeir yfir allt vesenið sem átti sér stað snemma á árinu og breytingarnar sem því fylgdu.
Tónlistarkonan Alaska1867 mætir til Danna í Plötu vikunnar í tilefni af útgáfu nýju breiðskífunnar 1867. Í spjallinu rifjar hún upp fyrstu skrefin þegar hún var tíu ára gömul, sendir góða kveðju á tónmenntakennarann sinn á Akureyri sem hafði mikil áhrif á hana og ræðir þakklætið sem fylgir því þegar textarnir hennar vekja upp tilfinningar hjá fólki. Þá talar hún um nauðsyn þess að geta gert sig að fífli án þess að spá í hvað öðrum finnst og óskar eftir því að foreldrar barna sem heita Kolfinna hafi samband. Að spjallinu loknu hljómar platan í heild sinni þar sem Alaska1867 kynnir hvert lag fyrir sig.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.