Stebbi Jak - Líttu í kringum þig
Stebbi Jak mætir til Danna í Plötu vikunnar með breiðskífuna Líttu í kringum þig. Í þættinum fara þeir yfir allt vesenið sem átti sér stað snemma á árinu og breytingarnar sem því fylgdu.
Hljómsveitin Marsibil mætir til Danna í Plötu vikunnar til að kynna sína fyrstu breiðskífu, sem ber einfaldlega heitið Marsibil. Þau Una Schram og Kári the attempt tóku upp og unnu plötuna alfarið sjálf, en sveitin er nefnd í höfuðið á eiginkonu Kára. Í viðtalinu ræða þau hvernig vegir þeirra lágu saman og hvernig samstarf þeirra hefur þróast frá því að vera rétt svo kunningjar yfir í að vera frábærir vinir í frábæru samstarfi. Svo heyrum við auðvitað kynningar fyrir lög plötunnar ásamt lögunum sjálfum.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.