Plata vikunnar

Lúpína - Light in the Dark

Tónlistarkonan Lúpína sest niður með Danna og fer yfir ferilinn, allt frá því hún byrjaði ung að spila á fiðlu og fram til dagsins í dag. Í spjallinu ræða þau ákvörðun hennar að prófa að syngja á ensku, góð tök hennar á samfélagsmiðlum og hvernig sú vegferð hefur áhrif á þörfina fyrir plötufyrirtæki í dag. Þá er nóg um að vera hjá Lúpínu á Iceland Airwaves í vikunni, en hún kemur fram í Sky Lagoon á þriðjudag kl. 20:30, í Reykjavik Record Shop á miðvikudag kl. 19:30 og í Smekkleysu á laugardag kl. 17:00.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Plata vikunnar

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Þættir

,