Lúpína - Light in the Dark
Tónlistarkonan Lúpína sest niður með Danna og fer yfir ferilinn, allt frá því hún byrjaði ung að spila á fiðlu og fram til dagsins í dag. Í spjallinu ræða þau ákvörðun hennar að prófa…
Rokkrisarnir í HAM mæta til Danna í Plötu vikunnar til að kynna nýjustu breiðskífu sína, Endalok alls. Platan er framleidd af Arnari Guðjónssyni og eins og við er að búast er bensínið í botni hjá sveitinni á þessari nýju útgáfu.
Í viðtalinu ræða þeir S. Björn Blöndal og Óttarr Proppé sköpunarferlið á bak við verkið og væntanlega útgáfutónleika í Eldborg í nóvember. Farið er yfir söguna hingað til, hvað drífur sveitina áfram eftir öll þessi ár, þennan óvænta gestagang á plötunni og svo hlustum við auðvitað á kynningar fyrir lög plötunnar auk laganna sjálfra. Hækkið vel í viðtækjunum, því þetta er plata sem krefst þess að vera spiluð á hæsta mögulega styrk.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.