Kvöldfréttir útvarps

Fiskiskip í vanda, viðbragðsáætlun virkjuð vegna netárása, ofbeldi og hótanir í garð fangavarða, flóttamenn á Kanaríeyjum, Norðurorka í klípu, íþyngjandi húsnæðiskostnaður

Samhæfingarstöð almannavarna hefur verið virkjuð vegna fiskiskips í vanda austur af landinu.

Viðbragðsáætlun Almannavarna ríkislögreglustjóra og CERT-IS hefur verið virkjuð um verndun ómissandi upplýsingainnviða. Í tilkynningu segir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum.

Ofbeldi og hótanir í garð fangavarða hafa aukist verulega, en þekktust vart fyrir um áratug.

Tvö þúsund flóttamenn komu til spænsku eyjunnar El Hierro í gær. Hún er minnst af Kanaríeyjum og yfirvöld óska liðsinnis Evrópusambandsins.

Norðurorka frestar framkvæmdum við heitavatnsborholu og leitar leiða til hagræðingar, eftir að fallið var frá fyrirhugaðri sjö prósenta gjaldskrárhækkun. Forstjóri segir að frestunin sé óheppileg í ljósi þess að eftirspurn eftir heitu vatni hefur aukist.

Formaður Samtaka leigjenda segir ólíðandi að hátt hlutfall leigjenda búi við íþyngjandi húsnæðiskostnað en það þýði að yfir fjórðungur tekna fari í að greiða fyrir húsnæði.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,