
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Yfir þúsund frávik fundust við úttekt á brunavörnum hjá ríkisstofnunum þar sem fólk er lokað inni, í haldi eða vistun – þar af hátt í fjögur hundruð alvarleg frávik.
Keflavíkurflugvöllur og Háskóli Íslands eru meðal stofnana sem fengu sprengjuhótun í dag. Lögregla fylgist grannt með en telur ekki ástæðu til frekari aðgerða.
Forsætisráðherra Bretlands segir það óhugsandi að Bretland gangi aftur í Evrópusambandið án þess að þjóðin greiði um það atkvæði.
Bág fjárhagsstaða Náttúruminjasafns Íslands vegur þungt í áformum um sameiningu þess við Náttúrufræðistofnun. Uppsafnaður halli safnsins í fyrra nam nær 420 milljónum króna.
Heimildarmynd um frumkvöðul úr Kísildal, sem var dæmd í fangelsi fyrir stórfelld fjársvik, er vinsælasta myndin í bíóhúsum landsins. Aldrei hafa fleiri séð heimildarmynd um frumsýningarhelgi.

Fréttir.