
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Enn er verið að telja atkvæði eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum en ljóst er að demókratar hafa tryggt sér meirihluta í báðum þingdeildum. Doktor í stjórnmálafræði segir kosningaúrslitin áfellisdóm yfir forsetanum, en áhrifin á flokkana vestra eiga eftir að koma í ljós.
Sótt var að fjármálaráðherra á þingi í dag í tengslum við uppsögn forstjóra Landsvirkjunar. Ráðherra vill að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd taki málið fyrir.
Yfir fimm hundruð hafa leitað á bráðamóttöku vegna rafskútuslysa á síðustu þremur árum. Margir hafa hlotið alvarlega áverka.
Þörf á endurbótum á Westminsterhöll, breska þinghúsinu, er orðin mjög brýn. Ef ekki verður farið í þær eykst hættan á eldsvoða líkt og varð í Notre Dame í París. Þetta kemur fram í yfirlýsingu þingnefndar.

Fréttir.