
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Hörður Arnarson hafði í aðdraganda afsagnar sinnar sem forstjóri Landsvirkjunar ítrekað vakið athygli stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðuneytis á því sem hann taldi óeðlilega starfshætti og jafnvel ólöglega vörðuðu við lög.
Bróðir manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024 lýsir leit að honum í síðustu viku sem sjónarspili. Hann ætlar að fara þess á leit við bæjarstjórn Grindavíkur að haldið verði áfram að leita.
Kona sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti gagnvart fjórum segist sjálf hafa verið áreitt af meintum fórnarlömbum. Fyrsta degi aðalmeðferðar í máli hennar lauk í dag.
Lokað hefur verið fyrir vatn og rafmagn í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða. Þingmenn Flokks fólksins vilja lagagrundvöll fyrir búsetu í hjólhýsum.

Fréttir.