Kvöldfréttir útvarps

Kjarasamningur kennara, börn með fjölþættan vanda, sala Samskipa og Dani sem var óafvitandi aðalpersóna sjónvarpsþáttar

Kennarar og sveitarfélög eru ósammála um stöðu kjarasamninga kennara. Kennarasambandið segir stefna í að samningar bresti en sveitarfélög eru vongóð um lausn.

Sveitarfélög hafa ekki skorast undan ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda, segir formaður Velferðar – en ríkið hafi brugðist skyldu sinni.

Forstjóri Samskipa sér engar hindranir í vegi fyrir sölu félagsins til erlends skipafélags. Mál Samkeppniseftirlitsins og sekt upp á rúma fjóra milljarða fylgi í kaupunum.

Þrettán voru drepnir í árás á lestarstöð í úkraínsku borginni Dnipro í dag. Forseti Úkraínu segir að Rússar hafi vísvitandi beint dróna að almennum borgurum.

Danskur grínisti komst að því að hann var blekktur í fjóra mánuði við gerð sjónvarpsþáttar. Hann taldi sig vera að búa til kvikmynd en var í raun óafvitandi aðalpersóna í sjónvarpsþáttum

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,