Kvöldfréttir útvarps

Sala Samskipa, uppsagnir hjá hinu opinbera, rannsókn á lestarslysi á Spáni og niðurgreiðsla Loftbrúar

Spænskt skipafélag hefur samþykkt að kaupa allt hlutafé Samskipa. Við kaupin stíga aðaleigendur til hliðar en forstjóri Samskipa situr áfram.

Forseti ASÍ telur að hið opinbera gangi of langt í uppsögnum. Fimmtíu var sagt upp hjá borginni í gær og sautján misstu vinnuna hjá Sorpu í dag.

Forsætisráðherra Spánar heitir umfangsmikilli rannsókn á tildrögum lestarslyss í morgun, þar sem sextíu og átta dóu. Þetta er annað mannskæða lestarslysið í landinu á árinu.

Dæmdur ofbeldismaður birti myndskeið af barni viðmælanda Kveiks eftir þátt þar sem fjallað var um aðkomu hans að einkareknu búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda.

Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar var rúmlega 9.200 krónur á hvern fluglegg í fyrra, litlu meira en fyrirhugað er að greiða samkvæmt nýju fyrirkomulagi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,