Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, ASÍ og veðurtjón á Siglufirði
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í dag. Hann er þó enn félagi í flokknum og styður ríkisstjórnina.
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í dag. Hann er þó enn félagi í flokknum og styður ríkisstjórnina.
Varaforsetum ASÍ verður ekki fækkað, þar sem tillaga miðstjórnar þar að lútandi var felld á landsþingi sambandsins í dag.
Mikil mildi þykir að enginn slasaðist í óveðrinu sem gekk yfir Siglufjörð í gær. Þök rifnuðu af þremur húsum og brak þeyttist um allan bæ. Eignatjón í bænum gæti hlaupið á hundruðum milljóna.
Varnarmálaráðherra Bretlands hvetur Bandaríkin til að standa með Úkraínu gegn innrás Rússa. Það styðji hagsmuni Bandaríkjanna og óráð sé að umbuna árásarhneigð.
Umsjón: Þorgils Jónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Fréttir.