Bítlalög með íslenskum flytjendum
Leikin eru nokkur Bítlalög sem íslenskar hljómsveitir og söngvarar flytja. Fyrsta lagið er Stundum í túlkun Geirs Ólafssonar, en það er íslensk gerð lagsins Something. Pálmi Sigurhjartarson…
Leikin eru nokkur Bítlalög sem íslenskar hljómsveitir og söngvarar flytja. Fyrsta lagið er Stundum í túlkun Geirs Ólafssonar, en það er íslensk gerð lagsins Something. Pálmi Sigurhjartarson spilar síðan lagið einn á píanó. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar flytur Yesterday og Eva Björnsdóttir syngur I Want To Hold Your Hand. Halldór Gunnarsson flytur útsetningu sína á Lady Madonna og Seiseijú flytja The Long and Winding Road. Bítla Tribute hópurinn flytur Here Comes The Sun og Ellen Kristjánsdóttir syngur I Will. Lokbrá flytur Norwegian Wood, Buff flytur Blackbird og Páll Rósinkranz syngur Glass Onion.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.