
Flugur
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru nokkur lög þar sem kvæði Jóns Thoroddsen sýslumanns og rithöfundar eru í forgrunni. Andrea Gylfadóttir og Tríó Björns Thoroddsen flytja lagið Ísland (Ó, fögur er vor fósturjörð) við lag eftir Schiött og Karlakórinn Fóstbræður syngur sama kvæði við lag Emils Thoroddsen. Haukur Morthens syngur um Smalastúlkuna, Tryggvi Tryggvason og félagar syngja Vorið er komið við lag Lindblads og Bubbi Morthens syngur Vorvísuna við lag Hallbjargar Bjarnadóttur. Björgvin Halldórsson syngur Vöggukvæði (Litfríð og ljóshærð) og Olga Vocal Ensemble syngur Krummi svaf í klettagjá. Ríó tríó syngur Búðarvísur og Kristjana Stefánsdóttir syngur Barmahlíð (Hlíðin mín fríða) við lag Flemmings. Gunnar Guðbjörnsson syngur Í fögrum dal og Elín Ósk Óskarsdóttir syngur Til skýsins (Sortnar þú ský) bæði lögin eftir Emil Thoroddsen.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.