Bandarískt Bítlapopp
Bandarískt tónlistarfólk flytur lög eftir meðlimi The Beatles. Aretha Franklin syngur Let It Be, Wilson Pickett syngur Hey Jude, Nina Simon flytur lagið Here Comes The Sun, Stevie…
Leikin eru lög sem samin hafa verið við ljóð eftir Vestur-íslenska kímniskáldið Káinn. Megin uppistaðan eru lög sem Bragi Valdimar Skúlason samdi eftir ferð Baggalúts manna til Norður-Dakota árið 2008. Það eru lögin Sólskinið í Dakota, Stína litla, Æfintýr, Hjálpaðu þér sjálfur og Vinaminning. Í þættinum eru einnig leikin lögin Dansinn í flutningi Randvers, Örin og ljóðið í flutningi Þórhalls Þorvaldssonar, Bakkus í flutningi Heimskyr, Ævintýri á gönguför sem Jón Rósmann Mýrdal syngur, Ægisdætur sem Gæðablóð flytur, Ævintýr og Gamalt og gleymt eftir Hörð Torfason sem hann flytur sjálfur og Fóstran í flutningi Súkkats.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.