Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 18. nóvember 2026

Stýrivextir verða áfram átta prósent en seðlabankastjóri er vongóður um að verðbólga minnki hratt á næsta ári. Hann hefur áhyggjur af byggingarverktökum.

Nokkrir hafa stöðu sakbornings í rannsókn á banaslysi á Breiðamerkurjökli árið 2024. Einn lést og annar slasaðist alvarlega þegar ísveggur hrundi.

Fundar leiðtoga Bandaríkjanna, Rússlands og Kína á morgun er beðið með eftirvæntingu. Líklegt þykir að þeir ræði yfirstandandi stríð, afvopnun og viðskipti.

Demókratar fá 56 sæti af 100 í öldungadeild Bandaríkjaþings. Mary Peltola er sigurvegari í Alaska.

Norðurorka biður Akureyringa að spara heitavatnið í frostinu. Olíuketill, sem aðeins er notaður í neyð, var kyntur í gær.

Jensen Huang, fyrrverandi forstjóri tæknifyrirtækisins Nvidia, fær ekki að snúa aftur í forstjórastólinn.

Nýr forseti ísraelska þingsins er úr röðum stjórnarandstöðuflokkanna.

Anna Þorvaldsdóttir fær Ivors-tónskáldaverðlaunin í ár fyrir sellóverkið Before we fall sem var flutt á upphafstónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í fyrra.

Bændur vilja heimild umhverfisráðherra til að verja akra og ræktarlönd fyrir ágangi álftar.

Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 41 stig fyrir Ísland í stórsigri á Aserbaísjan í forkeppni EM kvenna í körfubolta í gær. Hún skoraði þrettán þriggja stiga körfur, og sló eigið met.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,