Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. nóvember 2026

Rússnesk stjórnvöld eru sögð hafa boðað neyðarfund vegna árásar Úkraínumanna á brúna yfir á Krímskaga í nótt. Rússar réðust líka á samgönguinniviði, og það olli umferðarteppu í Kyiv í morgunsárið

Formaður Flokks fólksins segir það ávallt vonbrigði þegar þingmenn ákveða að ganga í Sjálfstæðisflokkinn.

Skiptastjóri hefur verið skipaður yfir sex félögum sem tengjast byggingu hótelturnsins við Skúlagötu. Fjárfestar hafa sýnt áhuga á að klára hótelið.

Mikill minnihluti háskólanema á Íslandi tekur námslán. Hagfræðingur BHM segir brýnt að endurskoða og breyta námslánakerfinu.

Rúmur fjórðungur blaðamanna hefur sleppt því að fjalla um mál vegna hugsanlegra viðbragða, samkvæmt nýrri könnun. Langflestir blaðamenn hafa upplifað fjandsemi vegna fréttaskrifa.

Gagnrýnendur greinir á um að hvort breski leikarinn Robert Pattinson sé heppilegur í hlutverk James Bond. Það að Pattinson sé þegar stórstjarna virðist einna helst fara öfugt ofan í fólk.

Færeyskur tölvuleikur gefur spilurum kost á að leika sjómenn í íslenskum höfnum. Áhuginn er slíkur að höfundurinn hefur gert leikinn að sínu aðalstarfi.

Dönsk fréttastöð hefur hætt við þátt um elstu konu Danmerkur eftir að upp komst að hún var virk í danska Nasistaflokknum á stríðsárunum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,