Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 12. nóvember 2026

Flugmenn Icelandair hafa samþykkt verkfall eftir rúma viku. Verkfallið nær aðeins til leiguflugs Icelandair.

Erindrekar Bandaríkjastjórnar funda í dag, fyrst með forseta Rússlands og svo með forseta Úkraínu, til að ræða gang friðarviðræðna í Abú Dabí.

Heimsóknarbann er á Landakoti vegna covid-sýkingar.

Auka þarf sérkunnáttu í lögreglunni svo betur sé hægt að rannsaka kynferðisbrot gegn börnum, segir dósent við lagadeild HR.

Demókratar bæta enn stöðu sína eftir bandarísku þingkosningarnar í síðustu viku. Í fyrsta sinn í fjörutíu ár var Demókrati kjörinn öldungadeildarþingmaður í Missisippi.

Myndskeið sem sýnir hermann skamma hermálaráðherra Bandaríkjanna við gröf óþekkta hermannsins í Washington hefur farið sem eldur í sinu um netið.

Jensen Huang, framkvæmdastjóri Nvidia, sem viðurkennt hefur að hafa haldið við konu sem sögð er vera kínverskur njósnari, hélt einnig við aðra konu sem starfaði hjá Nvidia.

Kaleo hélt óvænt tónleika á Ísafirði í gærkvöld. Þrátt fyrir að þeir væru ekki auglýstir voru Ísfirðingar fljótir að frétta að eitthvað yrði á seyði í Edinborgarhúsinu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,