Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 28. október 2026

Tugir eru látnir eftir lestarslys á Spáni í morgun. Hraðlest var ekið á aðra kyrrstæða á lestarteinum á leið frá Madríd til Sevilla.

Barnavernd og eftirlitsstofnanir hafa brugðist börnum með fjölþættan vanda segir mennta- og barnamálaráðherra. Umboðsmaður barna segir að fjárhagslegir hvatar megi ekki ráða för þegar kemur að þjónustu við þennan hóp.

Ekki er útilokað að Benjamín Netanjahú verði áfram við völd í Ísrael eftir kosningarnar í gær. Búið er að telja um 85 prósent atkvæða.

Bregðast þarf við innviðaskuld hjá lögreglunni, samkvæmt nýrri löggæsluáætlun, sem gerir ráð fyrir að lögreglumönnum verði fjölgað um fimmtíu árlega til 2031.

Forsætisráðherrar Norðurlandanna vilja bjóða veldi tæknirisanna birginn til að vernda barnæskuna. Kristrún Frostadóttir segir mikla samstöðu um að veita ekki aðgang að samfélagsmiðlum of snemma.

Sveitarstjóri Skagafjarðar segir það blauta tusku í andlit sveitarstjórna að ríkið hækki kílómetragjaldið, þegar sveitarfélög takmarki gjaldskrárhækkanir til að halda aftur af verðbólgu.

Sérfræðingar hafa kveðið upp úr um hvaða skyr er gómsætast á Norðurlöndum og það er ekki framleitt á Íslandi. Íslenskt skyr lenti í silfurflokki.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,