
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Efnahags- og öryggismál verða í brennidepli á fundum íslenskra ráðamanna með utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem kemur til landsins síðdegis.
Framtíð kjarasamninga VR gæti ráðist í kvöld þegar trúnaðarráð og stjórn félagsins halda fundi til að ræða stöðuna.
Félags- og húsnæðismálaráðherra telur frumvarp sitt um breytingar á húsaleigulögum tala beint inn í stöðu kjarasamninga. Sett verður á leiguþak og bannað að hækka leigu oftar en einu sinni á ári verði það að lögum.
Þingkosningar verða haldnar á Spáni í lok næsta mánaðar, níu mánuðum áður en kjörtímabilinu átti að ljúka. Ríkisstjórn Pedros Sanchez mistókst að koma í gegnum þingið frumvarpi sem ætlað var að bæta stöðu almennings á húsnæðismarkaði.
Landssamband veiðifélaga segir eldi frjórra laxa í kvíum í Seyðisfirði skapa óásættanlega hættu fyrir villta laxa- og silungastofna. Sambandið hyggst taka þátt í að kæra útgáfu rekstrar- og starfsleyfis Kaldvíkur.
Flavio Bolsonaro hlaut tveimur prósentum fleiri atkvæði en forsetinn Lula da Silva í kosningum í Brasilíu í gær. Þar sem hvorugur hlaut yfir helming atkvæða verður önnur umferð síðar í mánuðinum.
Karlalandslið Íslands í fótbolta leikur gegn Eistlandi í Þjóðadeild Evrópu annað kvöld. Þetta verður fjórði leikur liðsins á 12 dögum og meiðsli eru farin að setja svip sinn á hóp íslenska liðsins.

Útvarpsfréttir.