
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Ábyrgð á því að kjarasamningar haldi liggur hjá viðsemjendum, segir fjármálaráðherra. Ríkisstjórnin reyni þó að liðka fyrir og verða frekari aðgerðir mögulega kynntar á næstunni.
Dómsmálaráðherra segir nauðsynlegt að gera breytingar á útlendingalögum og þrengja skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu. Það sé ekki sjálfgefið að dvalarleyfi feli í sér að ættbogi einstaklinga fylgi með.
Flugstjóri sem varð fyrir árás frá flugmanni í vél á leið til Tel Aviv í Ísrael, segist ekki hafa getað látið allt þetta fólk sem í vélinni var deyja. Höggin dundu á honum þegar hann náði að opna flugstjórnarklefann.
Hundrað áttatíu og einum var sagt upp í sex hópuppsögnum í september, flestum á sviði hugbúnaðar- og upplýsingatækni.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir allt kapp lagt á að leysa stjórnsýsluvanda sem leiddi til þess að 20 manns var sagt upp hjá fiskvinnslunni Premium of Iceland. Vandinn gæti haft áhrif á yfir sjötíu fyrirtæki.
Verslun á netinu jókst um 13 prósent í sumar miðað við sama tíma árið áður. Íslendingar kaupa mest af vörum frá Kína.
Kvennalið Vals í fótbolta getur fallið úr efstu deild í fyrsta skipti í sögu þess í kvöld. Liðið þarf að vinna Fram í lokaumferð neðri hlutans og treysta á að Víkingur og Þór/KA geri jafntefli á sama tíma.

Útvarpsfréttir.