Þær Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þær fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Það virðist færast nokkuð í aukana að fólk hafi fasta búsetu í sumarhúsum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Hvað er fólk að sækja í þegar það kýs að búa í frístundabyggð frekar en þéttbýli? Erum við að gefast upp á borginni? Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur settist hjá okkur.
Í síðustu viku kom hann Stefán Atli í heimsókn í Síðdegisútvarpið og talaði um gervigreindina. Það gafst engan veginn tími til að fara yfir allt sem gervigreindin hefur upp á að bjóða og því ætlum við að fá Pétur Má Sigurðsson til okkar í dag. Pétur er forritari og sérfræðingur hjá fyrirtækinu Javelin en þau bjóða upp á endurmenntunarnámskeið til fyrirtækja. Hann kíkti til okkar á eftir með nokkur góð ráð.
Heilbrigðisyfirvöld á Kanaríeyjum hafa gefið út rauða viðvörun vegna mikils hita á ákveðnum svæðum á Tenerife í dag, sem gildir fram á laugardag. Reiknað er með því að morgundagurinn verði sá heitasti. Spáð er allt að 38° hita í dag á sumum svæðum, og við slógum á þráðinn til Sigvalda Kaldalóns, Svala, sem var nýlentur á Tene.
Bresku konungshjónin tóku á móti Donald Trump og konu hans, Melaniu, við Windsor-kastala í morgun, þegar önnur ríkisheimsókn Trump til Bretlands hófst formlega. Engum öðrum þjóðarleiðtoga hefur verið boðið í tvígang í slíka heimsókn, en þrátt fyrir það er óhætt að segja að það séu ekki allir ánægðir með þennan gest, og hafa mótmælendur meðal annars varpað myndum Trump og barnaníðingnum Jeffrey Epstein á Windsor-kastala. Oddur Þórðarson fréttamaður sagði okkur betur frá þessu.
Árið 2020 kom fram hugmynd í átakinu Áfram Árneshreppur um Baskasetur á Djúpavík þar sem hægt væri að fræðast um tengsl Baska og Íslendinga. Nú er komið að opnunarhátíðinni sem verður haldin næstkomandi laugardag. Héðinn Birnir Ásbjörnsson frá Baskavinafélaginu var á línunni.
Leiksýningin Tóm hamingja fer aftur á svið Borgarleikhússins næsta laugardag. Sýningin er samin af þeim Óla Gunnari Gunnarssyni og Arnóri Björnssyni sem leika einnig í sýningunni. Þeir frændur eru mjög afkastamiklir höfundar og hafa meðal annars skrifað fyrir Stundina okkar og Sjónvarp Símans. Næst á dagskrá hjá þeim er að skrifa annað leikrit fyrir Borgarleikhúsið og að frumsýna glænýja grínþætti á RÚV. Þeir kíktu í heimsókn.