
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Iðnaðarþjóð eru nýir þættir á Rás 1 þar sem Guðmundur Atli setur á sig verkfærabeltið og fræðist um heim íslenskra iðnaðarmanna með samtölum við starfandi fagfólk og reynslubolta. Guðmundur Atli kemur til okkar fræðir okkur um þættina og strangheiðarlega, íslenska iðnaðarmenn.
Kveikur í gærkvöldi fjallaði um ofbeldi og hótanir gegn lögreglumönnum. Rætt var við lögreglumenn sem hafa orðið fyrir slíku. Í þeirra málum blasir við svipað mynstur: vísbendingum var ekki fylgt eftir, lykilmenn lítið rannsakaðir og rannsóknir felldar niður. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna og Hildigunnur Einarsdóttir lögreglumaður koma til okkar.
Bandaríkin hafa misst vottun sína sem land þar sem mislingum hefur verið útrýmt. Bandaríkin hlutu vottunina árið 2000 en á undanförnum árum hefur þessi bráðsmitandi sjúkdómur sótt í sig veðrið. Hvað þýðir þetta og hvernig er staðan hér heima? Erna Kojic er yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans kemur til okkar.
Hvað þýðir þumall frá yfirmanninum? Af hverju er saklaus broskall orðinn passíf-agressífur og hvernig getur kúkurinn tryggt þér launahækkun? Emoji-kennsla er kennslubók í ritmáli nútímans sem brúar bilið milli kynslóða og höfundarnir Ari Friðfinnsson, Logi Páll Aðalsteinsson, Úlfar Konráð Svansson ætla að koma til okkar.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.