
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Kjördagur að kvöldi kominn í Los Angeles. Þar er Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas
Við heyrum aftur í Vali Grettissyni, blaðamanni á Heimildinni, sem er viðstaddur aðalmeðferð í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur sem er ákærð fyrir umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Brotaþolar í málinu sátu fyrir svörum í gær og Valur fer yfir með okkur það sem kom þar fram.
Íslensk stjórnvöld gáfu út almannavarnabækling í gær sem er ætlað að stuðla að því að heimili og fjölskyldur séu undirbúin þegar óvæntar aðstæður skapast. Bæklingnum er ætlað að veita almenningi upplýsingar um hvernig hann geti undirbúið sig fyrir náttúruhamfarir, óveður, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir og aðrar samfélagslegar áskoranir. Ekkert í bæklingnum kemur hins vegar Láru Ómarsdóttur á óvart en hún er löngu byrjuð að undirbúa sig undir ýmislegt sem getur komið upp. Lára kemur til okkar.
Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum Ísland.is og á verumvidbuin.is. Honum verður einnig dreift í prentaðri útgáfu á völdum stöðum um land allt frá miðvikudegi til sunnudags, með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar, samhliða sölu Neyðarkallsins.
Eldra fólki er að fjölga en á næstu tíu árum er spáð að fjölgun landmanna 80 ára og eldri verði 44 % samanborið við um 18 % í öðrum aldurshópum. Gott að eldast er verkefni sem snýr að því að hvetja fólk til að undirbúa efri árin, huga snemma að því að efla félagsleg tengsl svo sem með áhugamálum, rækta hugann með alls konar áskorunum og stunda reglulega líkamlega hreyfingu. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir okkur betur frá því.
Línur eru byrjaðar að skýrast í þingkosningunum í Bandaríkjunum. Þorgils Jónsson fréttamaður er á vaktinni á vef RÚV og kemur til okkar með nýjustu fréttir.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar leik í Laugardalshöll í kvöld gegn Úkraínu. Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður veit allt um málið.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.