
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Dómsmálaráðherra kynnti í síðustu viku frumvarp um vændi þar sem grundvallarbreytingin er sú að þegar vændiskaupamál koma til kasta lögreglu sé gefin út ákæra í staðinn fyrir að hægt sé að ljúka málinu bara með að borga sekt. Þá bendir hún á fjölda mansalsmála á Íslandi í tengslum við vændi. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur og dósent við Háskóla Íslands, fagnar frumvarpinu og segir það löngu tímabært. Margrét kemur til okkar.
Fjölskyldubaklandið ræður miklu um hver kemst inn á húsnæðismarkaðinn. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði. Niðurstöðurnar verða ræddar á hádegisfundi BHM og LÍS í Norræna húsinu í dag klukkan 11.30 en þar kemur ýmislegt forvitnilegt fram. Til dæmis að fjórðungur íslenskra háskólanema búi hjá foreldrum en á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið 4,2–16,5 prósent. Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS og Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM flytja erindi á fundinum í dag og þeir ætla báðir að koma til okkar.
Skaftáreldar og móðuharðindin eru mestu náttúruhamfarir sem hér hafa orðið á sögulegum tíma. Og höfðu raunar svo víðtæk og skelfilega áhrif um víða veröld að umfang þeirra er enn að koma í ljós. Þessi ósköp hafa lengi verið rithöfundinum og fjölmiðlamanninum Illuga Jökulssyni hugleikin, og hér birtist sýn hans á hamfarirnar og skelfileg áhrif þeirra. Illugi kemur til okkar.
Mosfellingarnir Steindi Jr. og Dóri DNA hafa snúið aftur með aðra seríu af ferðaþáttunum 1 stjörnu á Sýn+. Þar heimsækja félagarnir sex nýjar borgir og kynnast því hallærislegasta, skrýtnasta og slappasta sem þær hafa upp á að bjóða. Dóri kemur til okkar og baktalar Steinda, sem er staddur á Tenerife við tökur á nýjum þáttum.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.