
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í frumvarpi um breytingar á útlendingalögum er lagt til að sérstakt dvalarleyfi vegna vistráðningar, sem við köllum yfirleitt au pair, fyrir fólk utan EES-svæðisins verði lagt niður. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sagði í Morgunútvarpinu í gær að of mörg dæmi séu um vonda meðferð á au-pair stúlkum frá Filippseyjum og það hafi kallað á breytingar. Dilja Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir tillöguna og kallar eftir eftirliti. Hún verður á línunni.
Eins og kom fram í Morgunútvarpinu í vikunni þá hefur tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgað mikið milli ára en tæplega helmingur brotaþola eru börn. Fulltrúi í kynferðisbrotadeild lögreglunnar sagði hættulegt að láta mjög ung börn hafa snjallsíma og sambærileg tæki. Með því séu níðingar komnir inn í herbergi barna. Skúli Bragi hjá Netvís gaf foreldrum góð ráð hjá okkur í gær en við viljum meira. Ársæll Arnarsson prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, kennir foreldrum að vera leiðinlegir, sem hlýtur að vera nauðsynlegt ætli maður að setja mörk um notkun á snjalltækjum. Ársæll kemur til okkar.
Egill Almar Ágústsson hagfræðingur veltir fyrir sér hvort nú sé tímabært að velta fyrir sér að viðurkenna að það sé stöðnun á Íslandi? Hann bendir á umræðuna í sumar þar sem fólk kepptist við að tala niður árangur Evrópu á meðan Ísland var sagt spila í meistaradeild. En hvað segja tölurnar okkur? Egill kemur til okkar.
Einar Örn Jónsson kemur til okkar með sjóðandi heitan íþróttamola.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.