Morgunútvarpið

Vandræði Viðreisnar,gæludýr í kuldanum,grísirnir njóta lífsins og Gummi Ben

Myndband frá innbroti í Stjörnugrís hafa vakið óhug hjá fólki sem hefur jafnvel endurskoðað neysluvenjur sínar. Fyrirspurnum hefur rignt yfir Litla búgarðinn en þar eru grísirnir aldir á sumrin svo það sé hægt að leyfa þeim að vera úti og njóta lífsins sem þeir eiga, eins og bændurnar á Litla búgarðinum orða það. En er fólki umhugað um aðbúnað dýranna sem enda það á endanum borðar. Bóndinn Ævar Austfjörð verður á línunni.

Og við höldum áfram að fjalla um dýr því í kólnandi veðri eru sífellt fleiri gæludýraeigendur sem vita ekki alveg hvernig þeir eiga að snúa sér. Á að klæða hundana í peysur? Hvað með skó? Og hvað um kettina? Theodóra Róbertsdóttir dýrahjúkrunafræðingur kemur til okkar.

Ingvar Þóroddsson hefur sagt sig úr Viðreisn og er genginn til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir viðræður hafa byrjað eftir úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar en Jón sagði í gær að það kæmi honum ekki á óvart ef fleiri myndu fylgja í kölfarið. Þetta rímar við orð Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem segist hafa rætt við fleiri stjórnarþingmenn. En hvað er að Viðreisn? Pawel Bartoszek, sem tók við formennsku í þingflokki Viðreisnar í október, situr fyrir svörum.

Ísland vann öruggan 3-0 sigur á Lúxemborg í síðasta leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar þetta tímabilið. Ísland endar á toppi riðilsins og kemur sér þar með upp um deild. Og góðu fréttirnar eru fleiri því tveir af heitustu framherjum Evrópu spila saman í fremstu víglínu í landsliðinu um þessar mundir: Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson raða inn mörkum um þessar mundir og við fáum Guðmund Benediktsson til að rýna í stöðuna og framtíðina.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,