Morgunútvarpið

Ástandið í París og forseti borgarstjórnar um Húsadýragarðinn

Á fjórða þúsund manns hafa skrifað undir lista þar sem þess er krafist að Alþingi og dómsmálaráðherra beiti sér fyrir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála, frá rannsókn til dómsmeðferðar. Söfnun undirskrifta kemur í kjölfar umdeilds dóms Landsréttar þar sem maður var sýknaður af nauðgun eftir að hafa áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Konan í málinu hlaut alvarlega áverka, meðal annars rifbeinsbrot og heyrnartap en ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til hæstaréttar. Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir er á bakvið undirskriftasöfnunina og verður á línunni.

Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi hófst í Elliðarárdalnum á laugardaginn. Fimmtán hlauparar hófu leik með það að markmiði að hlaupa eins lengi og líkamninn leyfir. Fyrir þau sem ekki vita þá gengur Bakgarðshlaupið út á að hlaupa 6,7 kílómetra hring á klukkustund, eins oft og hægt er. Fimmtán hlauparar taka þátt í landsliðskeppninni og við tökum stöðuna á Garpi Elísabetarsyni í Elliðarárdalnum.

Borgarstjórn Reykjavíkur tekur í dag fyrir tillögu borgarfulltrúa meirihlutans um að kanna hvort rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sé betur borgið í höndum einkaaðila en borgarinnar. Bein framlög borgarinnar til rekstursins hafa numið 3,6 milljörðum króna síðastliðin tíu ár og nú að athuga hvort það sé málið að breyta því. Við heyrum í Björgu Magnúsdóttur, forseta borgarstjórnar.

Þingkosningar fara fram í Bandaríkjunum þriðjudaginn 3. nóvember og útlitið er ekki bjarta hjá Repúblikanaflokki Donalds Trumps. Forsetinn hefur þó reynt allt til að færa flokki sínum atkvæðin; hann er búinn að semja við Pútín um kaup á díselolíu í von um lækka verð, alríkislögreglumenn hafa verðir gerðir út til að hrella starfsfólk kjördeilda ásamt því að lofa fólki beinhörðum peningum sigri Repúlblikanar kosningarnar. Friðjón Friðjónsson, sérfræðingur um bandarísk stjórnmál, mætir og tekur kosningarnar allar 360 gráðurnar.

Undanfarið höfum við fengið fréttir af óeirðum, ofbeldi og gripdeildum í Frakklandi. Hundruð manna eru í varðhaldi, yfir 2.000 fyrirtæki hafa orðið fyrir barðinu á mótmælunum og Viðskipta- og iðnaðarráð Frakklands telur að tjón geti hlaupið á hundruðum milljóna evra. Laufey Helgadóttir, er listfræðingur og leiðsögumaður sem hefur búið í París í 40 ár og við ætlum að heyra í henni.

Verslun Skims í Kringlunni var lokað á sunnudag eftir að allt seldist upp. Löng biðröð myndaðist fyrir utan verslunina þegar hún opnaði í Kringlunni í síðustu viku. Íslendingar elska að fara í röð þegar erlendis verslunarrisar opna á Íslandi og Morgunútvarpið tók saman topp fimm lista yfir bestu biðraðirnar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,