
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Öryggisgalli í PHP forritunarmáli ógnar vefsíðum víða um heiminn. CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, vakti athygli á gallanum í gær en í frétt Wall Street Journal kemur fram að talið sé að um 70% af vefsíðum heimsins gætu verið í hættu vegna gallans. Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri ástandsvitundar hjá Netöryggissveitinni CERT-IS, verður á línunni fer yfir stöðuna.
Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Póllandi og gagnvart Úkraínu, deildi innleggi Volodomír Selenskí, forseta Úkraínu, á Facebook í vikunni sem sýndi hryllilegar myndir eftir árás Rússa á almenningsgarð við kaffihús í Kharkiv. Friðrik hvetur fólk til þess að líta ekki undan heldur skoða myndirnar og biður fólk um að hafa í huga að til eru þeir sem vilja líta framhjá þessu í þágu viðskiptahagsmuna. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gert samning við Rússa um kaup á eldsneyti og hefur takmarkað aðgengi Úkraínska hersins að internetinu. Friðrik verður á línunni.
Bílaframleiðandinn Tesla og aðaleigandinn Elon Musk kynntu á dögunum sportbíl sem keyrði á hvolfi áður en sleppti takinu á veginum og sveif til jarðar. Ekki er þó allt sem sýnist en bent hefur verið á að sýningarbíllinn hafi verið hálfgerð skel, einskonar lauflétt, mannlaus grind sem leit út eins og sportbíllinn en fyrstu hugmyndir um hann voru kynntar fyrir áratug. En hvað er á bakvið þessa tækni og hversu raunhæft er að hún verði notuð til að láta bíla framtíðarinnar fljúga um loftin blá? Torfi Þórhallsson, lektor í verkfræðideild HR, kemur til okkar en nemendur hans hafa meðal annars skotið upp eldflaugum.
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson mætir eldhress úr íþróttadeildinni með mola úr heimi íþróttanna.
Eldur kviknaði í húsnæði Brikk við Norðurbakka í Hafnarfirði í vikunni og þar verður því lokað í óákveðinn tíma. Við heyrum í Einari Hjörvari Benediktssyni, einum af eigendum, og könnum umfangið og hvenær Hafnfirðingar geta keypt sér brauð aftur.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.