Morgunútvarpið

Titringur,næstu skref í Grindavík,stóra hveitimálið,kokklandsliðið og munu einkaskilaboðin okkar leka?

Fyrr í mánuðinum fengum við fréttir af miklum hitafundi fasteignafélagsins Þórkötlu þar sem endurkaupaáætlun var kynnt fyrir íbúum Grindvíkur. Mikil óánægja var með áætlunina og í Morgunútvarpinu heyrðum við gagnrýni frá formanni Járngerðar - hagsmunasamtaka um uppbyggingu í Grindavík. Vegna athugasemdanna sem bárust var ákveðið að fresta næstu kynningarfundum og fara yfir ábendingarnar en er eitthvað að frétta af því? Pétur G. Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, kemur til okkar.

Hveiti undir merkjum Kornax, First Price og Euroshopper var á dögunum innkallað eftir að myglueitur mældist yfir mörkum. Allt hveitið kemur frá sama, danska framleiðandanum en miðað við umræður á samfélagsmiðlum þá virðast margir Íslendingar hafa talið að Kornax-hveitið væri íslenskt framleiðsla. Einu hveitimyllu landsins var hins vegar lokað í fyrra en eftir situr spurningin um hvað er leynist í íslenskum umbúðum. Er algengt að vörur sem við teljum vera íslenskar séu framleiddar erlendis? Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, kemur til okkar.

Kokkalandslið Íslands vann gull í Restaurant of Nations á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg á laugardag. Óvænt rafmagnsvandræði í eldhúsinu komu ekki að sök og framreiddi íslenski hópurinn gómsætan þriggja rétta kvöldverð fyrir 110 gesti. Seinni keppnisdagurinn er í dag og nú stendur til að elda íslenskan þorsk og lamb fyrir kröfuharða dómnefnd. Þórir Erlingsson, formaður Klúbbs Matreiðslumeistara, verður á línunni.

Titringur er nafnið á nýrri bók Ástarsögufélagsins, sem kemur út í dag. Í Titringi eru 18 sögur og ljóð eftir 16 höfunda en markmið Ástarsögufélagsins er að skrifa vandaða texta sem eiga kjarna sinn á einn eða annan hátt í ástinni, í ljósi hennar og skugga. Við veltum fyrir okkur stöðu ástarsögunnar í dag og fáum til okkar Brynju Sif Skúladóttur og Árni Árnason. Útgáfuhóf Titrings fer fram í dag milli klukkan 17 og 19 í Húsi Máls og menningar.

Netárásir verða sífellt tíðari. Nú síðast fengum við fréttir af vefhýsingarfyrirtækinu 1984, sem varð fyrir umfangsmikilli tölvuárás erlendra tölvuþrjóta og neyddist í kjölfarið til að stöðva alla þjónustu sína. Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður og kerfisfræðingur, ritaði í kjölfarið pistil og sagði næstu ár verða afar erfið þegar kemur að netöryggi. Hann framkvæmdi líka kaldan hroll niður hryggjarsúlur netverja þegar hann sagði að fólk ætti ekki að láta sér koma á óvart þó einkaskilaboð muni leka á netið á næstunni. Við ræðum málið við Helga Hrafn.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,