Morgunútvarpið

Umfangsmikið umsáturseinelti,Frelsisbjarmar,milljarðar í íþróttamannvirki á Akureyri og kosningar í USA

Í gær hófst aðalmeðferð í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur sem er ákærð fyrir umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Íris Helga segist saklaus og að hún hafi sjálf verið áreitt. Hún kannaðist við fátt sem borið var undir hana við aðalmeðferð. Valur Grettisson, blaðamaður á Heimildinni, var viðstaddur aðalmeðferðina í gær og verður á línunni.

Bandaríkin verða okkur ofarlega í huga í dag en þar fara fram þingkosningar í dag. Út er komin nýjasta bók Vals Gunnarssonar en hún nefnist Frelsisbjarmar - Bandaríkin á öldinni okkar: Hryðjuverkastríð, efnahagshrun og endalok heimsveldis. Í bókinni fjallar Valur um áhrif Bandaríkjanna, herstöðina á Íslandi, uppruna og afleiðingar 11. september, efnahagshrunið sem öllu breytti og sundrung þjóðarinnar. Valur kemur til okkar.

Kristín Helga Schiöth, fulltrúi Samfylkingar í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrar, undrast hve gríðarlega miklu fé er varið til uppbyggingar á svæðum stóru íþróttafélaganna í bænum, KA og Þórs. Hún gerir athugasemd við að yfir þriðjungur framkvæmdafjár í A-hluta reksturs bæjarins fari til þessara tveggja íþróttafélaga á kjörtímabilinu. Tæpir fjórir milljarðar króna. Kristín Helga mætir í hljóðstofu okkar á Akureyri ásamt Heimi Erni Árnasyni , formanni Umhverfis- og mannvirkjaráðs.

Við förum aftur til Bandaríkjanna en þar ganga kjósendur að kjörborðinu í dag. Samúel Karl Ólafsson, blaðamaður á Vísi, hefur fjallað um kosningarnar, sem gætu orðið afdrifaríkar fyrir forsetann Donald Trump, ef marka má kannanir. Samúel fer yfir stöðuna með okkur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,