Morgunútvarpið

Já og nei,veganismi,Klassíkin okkar,fjölbragðaglíma og ESB á mannamáli frá sérfræðingi í Evrópurétti

Fjölbragðaglíma er íþrótt sem við höfum ekki séð mikið af á Íslandi en í kvöld fer fram fjölbragðaglímusýningin Rumble in Reykjavík á vegum Icelandic Combat Theatre í garðinum fyrir utan Lemmy við Austurstræti. Hvernig fer þetta fram og er þetta alvöru íþrótt? Viktor Reinholdsson og Rakel Ósk komu til okkar.

Ellefta árið í röð bjóða RÚV og Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á Klassíkina okkar, tónlistarveislu í beinni útsendingu frá Hörpu þar sem landsmönnum gefst kostur á hafa áhrif á efnisskrána. Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, kíkti til okkar og sagði okkur frá opnum faðmi sinfóníunnar.

Kólumbískur matur, transylvanískar kökur, ungverskar flatbökur, víetnamskir réttir, bakkelsi og kökur og kaffidrykkir verða meðal annars í boði á Vegan hátíð á Thorsplani í Hafnarfirði á sunnudaginn. Aldís Amah Hamilton, leikkona og formaður Samtaka grænkera á Íslandi, kom í heimsókn og sagði okkur frá þessari girnilegu hátíð.

Ýmsu hefur verið haldið fram um aðildarviðræður við ESB, sem þjóðin kýs um á morgun. Margrét Einarsdóttir prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík kom til okkar á lokaspretti umræðunnar og fór yfir sviðið.

Við fengum til okkar Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingar, og Sigríði Andersen, þingmann Miðflokksins sem tókust á um þjóðaratkvæðagreiðsluna á morgun.

Birt

28. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,