Morgunútvarpið

Samúel hjá Piers Morgan,lýðræðisveislan og hver þorir næst?

Geðhjálp fór af stað með átakið Þótt sólin hverfi um stund er hún enn á sínum stað í tilefni af almyrkvanum í síðustu viku. Markmiðið er minna fólk á mikilvægi þess þekkja eigin bjargráð og leita stuðnings þegar skugga ber á í lífinu. Guðný Guðmundsdóttir frá Geðhjálp kom til okkar og sagði frá þessu mikilvæga átaki.

Okkar maður Guðmundur Jóhannsson er mættur úr sumarfríi, endurnærður og til í fræða okkur um það nýjasta úr heimi tækninnar.

Lýðræðisveislan er vefur sem var settur í loftið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor og nýtti gervigreind til miðla upplýsingum til fólks. býður vefurinn upp á greiningu á umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið sem fer fram 29. ágúst 2026. Rök og mótrök JÁ- og NEI-hliðarinnar, helstu hreyfingar, talsmenn og greinar í einu yfirliti. Halldór Berg Harðarson, maðurinn á bakvið veisluna, kom til okkar.

Hópur sveitarstjóra á landsbyggðinni birti á dögunum grein á Vísi undir fyrirsögninni Hver þorir næst? Þar eru stjórnvöld gagnrýnd vegna fyrirhugaðrar hækkunnar virðisaukaskatts á baðlón og segja sveitarstjórarnir breytingin leggist fyrst og fremst á atvinnugrein sem hefur skapað fjölda heilsársstarfa utan höfuðborgarsvæðisins. Kallað er eftir fyrirsjáanleika og málið sagt snúast um framtíð fjárfestinga á landsbyggðinni. Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri Bláskógabyggðar og Haraldur Þór Jónsson oddviti Skeiða og Gnúpverjahrepps komu til okkar.

Samúel Guðmundsson var gestur í þætti Piers Morgan í lok síðustu viku og mætti þar bandaríska rabbínanum Shmuley Boteach. Rabbíninn hafði sakað Samúel um gyðingahatur sem síðarnefndi segir tóma þvælu. Þátturinn hefur vakið gríðarlega athygli og Samúel hefur fengið holskeflu af skilaboðum, bæði jákvæðum og neikvæðum. Við heyrðum í Samúel og könnuðum hvernig síðustu dagar hafa verið í lífi hans.

Birt

17. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,