Morgunútvarpið

Páskaveðrið, ný grínplata, Daði Freyr í heimsókn og páskahugvekja frá Davíð Þór

Mörg eru á ferð og flugi um páskana og þá er vissara líta til veðurs. Við heyrðum í Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi og fórum yfir stöðuna. Hvernig verður færðin? Er eitthvað sem þarf varast? Hvernig verður veðrið á Tene? Þetta og meira til í Morgunútvarpinu.

Grínplatan virðist vera í ákveðinni útrýmingarhættu en fáar slíkar hafa komið út hér á landi undanfarin misseri. Úr þessu hyggst grínistinn Grettir Valsson bæta og sendir frá sér plötuna Ekki láta plata þig. Hann gaf út lagið Á typpinu fyrir tveimur árum og sendi síðast frá sér danslagið Skiptámér. En hvert sækir þessi ungi grínisti innblástur og af hverju ákvað hann skella í heila plötu? Grettir leit við í Morgunútvarpinu.

Okkar allra besti Daði Freyr skaut óvænt upp kollinum í þættinum Góðir Íslendingar á RÚV á laugardaginn. Hann hefur látið nokkuð lítið fyrir sér fara undanfarið en sendi engu síður frá sér lagið Hot Damn á dögunum og leggur drög tónleikaferð um Bandaríkin næsta vetur. En hvað er meira frétta af þessum frábæra tónlistarmanni? Daði Freyr sagði okkur það í Morgunútvarpinu.

Páskarnir eru á næsta leyti og af því tilefni leitaði Morgunútvarpið inn á við með Davíð Þór Jónssyni, presti í Laugarneskirkju.

Birt

1. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,