Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun um að breyta heiti varnarmálaráðuneytisins í stríðsmálaráðuneyti. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor fer yfir málið með okkur.
Hallgrímur Indriðason, fréttamaður, verður á línunni frá Noregi þar sem kosið er til þings í dag.
Við förum síðan yfir íþróttir helgarinnar, venju samkvæmt.
Félag læsisfræðinga á Íslandi (FLÍS) sem fagnar um þessar mundir fimm ára afmæli minnir fólk á að við getum öll stutt við lesskilning barna. Auður Soffía Björgvinsdóttir aðjúnkt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands lítur við.
Frumflutt
8. sept. 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.