Eyja hinna dauðu
Pétur Grétarsson slæst í för með hlustendum á leið í tónleikasal. Hann bregður á fóninn nokkrum tóndæmum sem tengjast dagskrá sinfóníutónleika sem taka við í beinni útsendingu.
Ása Briem fjallar um efnisskrá tónleikanna og ræðir m.a. við Bar Avni hljómsveitarstjóra tónleikanna. Í þættinum hljómar eftirtalin tónverk:
Octobre op. 23 nr. 1 eftir Charlotte Sohy, flutt af Heloise Luzzati sellóleikara og Celiu Oneto Bensaid píanóleikara
II. þáttur úr Svítu fyrir selló eftir Gaspar Cassado, Sardana (Danza), fluttur af Bryan Cheng sellóleikara. Hljóðritun af diskinum Violoncello del fuego sem kom út árið 2018
Í hléi tónleikanna ræðir Ása við Bar Avni hljómsveitarstjóra, m.a. um Sinfóníu í cís-moll eftir Charlotte Sohy.

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.