Eyja hinna dauðu
Pétur Grétarsson slæst í för með hlustendum á leið í tónleikasal. Hann bregður á fóninn nokkrum tóndæmum sem tengjast dagskrá sinfóníutónleika sem taka við í beinni útsendingu.
Ása Briem ræðir við Tryggva M. Baldvinsson tónskáld og listrænan ráðgjafa Sinfóníuhljómsveitar Íslands um efnisskrá tónleikanna og fleira sem snertir starf Sinfóníuhljómsveitarinnar. Í þættinum hljómar hljóðupptaka með einleikara tónleikanna, fiðluleikaranum Lizu Ferschtman sem leikur, ásamt Esther Hoppe, verkið Moonshadow Sunshadow fyrir tvær fiðlur eftir bandaríska tónskáldið Vanessu Lann.

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.